Jólakort!!
Ţađ er til gott fólk!
Margt búið að gera í dag. En ég lenti í því í dag að týna veskinu mínu og fattaði það ekki en svo kom ein í vinnuni og fann veskið og kom með það til mín. vá, bjóst ekki við að finna það enda fattaði ég ekki að það var týnt... Ég er svo vitlaus einhvað..
En já var lengi búin að bíða eftir því að fara í bílabíó í gær en já nei það var síðan ekkert bílabíó útaf veðrinu þannig að það var fært Sódóma Rvk í Höllina! og ekkert að veðrinu.. :)
En fór bara snemma í háttinn og horfði á Family guy og sofnaði :)
En já vinna vinna!
*Kjáninn*
Hneiksl!
Ég er líklega að missa af miklu?
http://youtube.com/watch?v=Do2Kt0XrbTQ Eða fara inn á Í Youtube og skrifa Írskir dagar!!
Kær kveðja, Tinna bumbulína

Bens gella :)
M.Bens 98" árgerð. Við erum rosalega ánægð með hann :)
Meira að segja fyrsti bíllinn sem ég á einhvað í :D
Ykkar Tinna :)
I´m a lady.
Barnaland: Er komin með síðu fyrir bumbunbúann. Hérnar er slóðin: http://www.barnaland.is/barn/66612.
ÉG þarf líka að fara að fá mér photoshop í nýju mac tölvuna til þess að klára vinnuna mína þegar ég kem heim eftir vinnu.
Video: Ég og Axel minn horfðum á Köld slóð á mánudagskvöldi. Ekkert smá góð mynd, mæli með henni. Ég ætlaði nú ekki að horfa á hana enda klukkan meira en 22:00 þegar myndin var sett í tækið og hún var til eitt eða meir. En vá þessi mynd kom mér þvílík á óvart.

Nýtt á Stöđ 2
Life on Mars - 6. september
Fimmtudagskvöld kl. 22:10
Önnur þáttaröð breskrar seríu sem segir frá lögreglumanninum Sam Tyler sem lendir í alvarlegu slysi og þegar hann vaknar er hann staddur á árinu 1973. Hvað er hér að baki, tímaferðalag eða er honum að dreyma?
Saving Grace - 10. september
Mánudagskvöld kl. 20:40
Spennandi þáttaröð með óskarsverðlaunaleikkonunni Holly Hunter í aðalhlutverki. Grace Hanadarko er lögreglukona sem er á góðri leið með að eyðileggja líf sitt þegar engill birtist henni og heitir að koma henni aftur á rétta braut.
Trinny and Susannah undress - 12. september
Miðvikudagskvöld kl. 20:10
Trinny og Susanna eru tískulöggur með meiru en nú ætla þær að ferðast um Bretland og ráðleggja fólki um tísku og allt sem henni fylgir.
It's always sunny in Philadelphia - 13. september
Fimmtudagskvöld kl. 21:00
Skemmtileg gamanþáttasería sem fjallar um fjóra félaga sem reka bar saman en eru allir of sjálfumglaðir til að geta unnið saman árekstrarlaust.
Tekinn 2 - 14. september
Föstudagskvöld kl. 20:10
Önnur sería hinar geisivinsælu þáttaraðar Tekinn þar sem Auðunn Blöndal fetar í fótspor Aston Kutcher og hrekkir fræga fólkið á óborganlegan hátt.
Næturvaktin - 16. september
Sunnudagskvöld kl. 20:35
Glænýr íslenskur gamanþáttur með Jóni Gnarr og Pétri Jóhanni Sigfússyni í aðalhlutverkum. Næturvaktin er fyrsta leikna sería sinnar tegundar á Íslandi, uppfull af gráslettnum húmor í anda Seinfeld og The Office.
Kompás og 60 mínútur - 18. september
Þriðjudagskvöld
21:40 Edduverðlaunaþátturinn Kompás snýr aftur og tekur á málefnum líðandi stundar.
22:15 Glænýr þáttur virtasta og vinsælasta fréttaskýringaþáttar í heimi þar sem reyndustu fréttaskýrendur Bandaríkjanna fjalla um mikilvægustu málefni líðandi stundar og taka einstök viðtöl við heimsþekkt fólk.
Laugardaga og sunnudaga kl. 08:00 - 10:00
Sveppi vaknar með börnunum alla laugardaga og sunnudagsmorgna í vetur. Allt besta barnaefnið og Sveppi sjálfur leikur sér við smáfólkið og spjallar um allt milli himins og jarðar.
JEsú í nútímanum.
Persónulega, finnst mér þessi bara nokkuð góð. Fyndin og nútímaleg og flest allir ættu að skilja! En ég dýrka hugmyndir Jóns G. en þetta er misjafnt hjá fólki.
Hér getiði séð auglýsinguna:
http://visir.is/article/20070904/FRETTIR01/70904076
hvernig finnst ykkur um jesú auglýsinguna?
kær kveðja, Tinnsla
Busun..
Ég man árið 2004 þegar ég var að fara í fva í fyrsta skipti og þá var maður busaður, en ég slapp ágætlega. En þetta er svona, auðvitað á þetta að vera eftirminnilegur tími. En sjáið þessar myndir???
Busun sem fór úr böndunum. (MÍ)
Aumingja krakkarnir
Kær kveðja, Tinna Ósk
Allt ađ gerast!
Ég eignaðist lítinn frænda 15 ágúst :)

Krútt Dagsson :)
Systir mín og Dagur , til hamingju :*
Þetta er alveg yndislegt þegar svona ný líf koma í heiminn.
En já vinna vinna :) og sef líka svolítið og mikið að gera :( ... Svo eru dagarnir alltof fljótir að líða!!
En við sjáumst!







